Thank god for cold fusionBjörgvin Freyr
Skólinn minn vill að ég læri 70 blaðsíður fyrir hvern tíma... nema stundum bara 30... eða kannski 4 kafla í leiðinlegum bókum... sjitt... ég virðist þurfa hafa smá fyrir þessu...og ég sem hélt þetta væru gefins Einingar... hver sagði mér það aftur???
ég held að það sé ekki nógu mikið magn af Solace í þessu sambandi...
Fyrir þá sem vissu það ekki þá er ég altaf að klifra og klifraði í Valshamri um daginn... Vilborg tók myndavélina og tók myndir og ég að vísu líka... Ég var að tryggja hina og þessa í öllu þessu klifri og sem betur fer kunni ég til verka því allir sem ég tryggði duttu jafnóðum og var að tryggja þá... eða svona... Ekki Ari... og Vilborg og Björn runnu bara nokkra sentimetra... en Einn gæji datt sæmilega hjá mér og meiddi sig... Við höfðum öll séð fjallaklifurs-stórslysamyndir svo við grófum hann bara á staðnum og fórum með stutta bæn, en þegar kennarinn klifraði niður og sagði "Oh... Kjánar!" og gróf hann upp aftur... Hann náttúrulega sá ekki hvað við þurftum að hafa mikið fyrir því að grafa manninn sérstaklega af því að hann var altaf að reyna klifra uppúr þessari líka fínu gröf sem við gerðum handa honum... síðan hristi kennarinn hausinn og dreif sig upp aftur... við vorum ekkert reið út í hann þótt hann hefði skemmt gröfina okkar fínu...
af hverju leyfiði mér að bulla svona?
Ætlar enginn að stoppa mig???
Ég klifraði líka alveg þangað til loftið var farið að þynnast og hugsaði mér þá að drífa mig niður... en neibbs þá var ég víst ekkert kominn á toppinn og þurfti að fara ennþá hærra upp... þar var svo akkeri sem ég gat... þið eruð ekkert að hlusta... ég er hættur að skrifa...
Athugasemdir
1
Sigrún skrifar:
vá ég var alveg viss um að ég hafði kommentað um daginn?!
08. júní 2008 klukkan 21:52
2
Vilborg skrifar:
hehe já þú ert öflugur í tryggingunum það er ekki hægt að segja annað :D
09. júní 2008 klukkan 20:10
3
Vilborg skrifar:
5 dagar björgvin það er ekki meira :P
jibby
jibby
28. júní 2008 klukkan 09:09