RúsínurBjörgvin Freyr

Á morgun kemur litla rúsínan hún Berglind Frænka í heimsókn... og ég svona hálf lofaði henni gistingu... síðast þegar ég lofaði einhverjum gistinu þá kom ég heim einn daginn með þrjú lík í stigaganginum mínum og sjóðandi illann nágranna... Skömmustulegur En hey... það er allt í lagi...

Ráðskonur frá Rúmeníu eru svoooo dýrar að ég bara átti ekki fyrir svoleiðis... svo ég sendi bara eftir litlu frænku minni frá Egilstöðum í staðinn... Hehehe

En hvar á hún að gista? flestir sem gista hérna eru ekkert í ástandi til að kvarta yfir lélegri dýnu, götóttum sófa eða hörðu gólfi... þeir bara sofna þar sem þeir detta niður, skriðu eða voru dregnir...

Svo lausnin á þessu litla vandamáli er... Að láta hana fá herbergið mitt... ég get alveg harkað af mér þennan sófa í viku ekkert mál... og ég þarf bara að taka smá til... hmmm... heheheUllandi

Saklaus

AmmiliBjörgvin Freyr

Hehehe... Ég átti afmæli um daginn og það var bara glæsilegt Saklaus ég var alveg bara nokkuð sáttur með það... ég vaknaði og fór að hitta Ómarinn minn í vinnunni sinni og við fórum að fá okkur eitthvað að borða sem sagt... dagurinn byrjaði svona... um hálf ellefu leitið... en alla vega þegar ég skutlaði Ómari svo til baka úr vinnunni þá hringdi Danni og Henný... og Marinó... og þau höfðu ákveðið að líta í litla heimsókn... svo minns brunaði heim og fann þau bíðandi út í bíl eftir minns... og þau gáfu mér lítið bleikt veski sem stendur Princess á Brosandi hehe... og í því var sápukúludót og nammi svo þá var dagurinn strax orðinn alveg frábær... mmmm nammi Gráðugur öhömm... já... alveg rétt... híhí já alla vega þá var ég eitthvað að leika við Marinó og spjalla við Danna og Henný svo þegar þau fóru þá kom Toni heim og ég ákvað bara að halla mér í hálftíma því ég þurfti að fara á næturvakt um nóttina... EN... svo fór ég að vinna Og Hildur rúsínufrænka mín mundi eftir afmælinu mínu og ég fékk magnaðann afmælissöng of allt Þögull sem gröfin hehe... síðan fór minns bara í bíó og sonna... þurfti ekki að borga krónu... og á meðan ég var þar þá bökuðu Thelma, Lilja og Hildur köku handa mér og héldu litla afmælisveislu í kvöldhressingunni Hlæjandi ég dýrka það... mér finnst það einhvern veginn altaf gaman þegar fólk heldur afmælisveislu þótt ég sé ekki á svæðinu eins og þegar strákarnir héldu afmælisveislu á Benedorm og ég var hérna á Íslandi... Það er eitthvað svo sniðugt... Æ ég veit ekki akkuru...

En Alla vega ég fór bara á OMEN og hún var krípí... en samt... ekkert svo öflug... soldið lík einhverri annari mynd þar sem var krípí krakki í svona hryllingsmynd... man ekki hvað hún hét... við fórum alveg milljón á hana... Alla vega... þá fann ég afmæliskort í vinnunni og allt og þar stóð "Til hamingju með Afmælið Björgvin Okkar núna ertu loksins kominn í fullorðinna manna tölu" Ullandi hehe... demmit... þá er maður kominn í fullorðinna manna tölu... ég alveg var alveg sáttur við að vera svona mitt á milli fullorðinna og krakka... en jæja... kannski er þetta fínt líka Svalur Alla vega... Næturvaktinn var róleg og ekkert gerðist... ég horfði á svona fjórar bíómyndir og X-files og endursýningar af leikjunum um daginn... og það bara nær ekki norðann átt hvað fyrsta markið í Þýskaland - Kosta Rika var óendanlega kúl... alveg bara þvílík negla og lenti í sko alveg efst í horninu á markinu og alveg PLOINKS og eldingaðist inn í markið... það var svo OF kúl

En já... sama hvað ég horfði á margar endursýningar þá nennti ég aldrei að horfa á seinni hálfleikinn í Pólland - eitthvað leiknum

Alla vega... svo kom ég heim af löngu næturvaktinni... og ætlaði að fara sofa... en nei... ég var kominn yfir þreytuna... náði samt að liggja andaka í tvo tíma áður en ég fór með Oddrúnu og litlu gaurunum hennar í fjölskyldu og húsdýragarðinn... og e-h... við fengum auðvitað pulsu... svo var Ísleifur e-h "Björgvin?... mig langar í svona svifdreka..." og benti e-h... og ég var alveg "já mig líka..." en einhverra hluta vegna var geðveikt erfitt að labba af stað og heimta að konurnar bara gæfu okkur svifdreka... eða... það var allt í lagi að koma og vera e-h "halló... litla stráknum mínum langar í svona dreka... má ég fá???" en... að koma e-h "Halló litla stráknum mínum langar í svona dreka... má ég fá tvo???" Svo við báðum Oddrúnu um þetta... Og hetjan hún Oddrún bara fékk þrjá!!! handa hinum stráknum líka Hlæjandi

En hey... Svo fórum við á einhverja bílasýningu þar sem ég fékk að nota setninguna "Jaaaaááá ert þú stelpan sem Ómar Rotaði???" Hehehe... og svo fórum við að skoða bíla... það var einn Sænskur bíll sem ég kann ekki að segja hvað heitir á svona palli... og hann var klikkaður... hann var svo klipptur úr einhverri framtíðarbíómynd... og hurðirnar komu svona -SWWWWWVVVVwwwvvv- -Dsssssuuuuuuu- skiljiðu komu svona út og svo upp... Æ þið skiljið þetta... og alla vega hann kemst til Keflavíkur á Korteri... og svo örugglega annað korter til baka... en hann kæmist bara að álverinu þá yrði hann bensínlaus... soddan risavél í þessu skrímsli... hraðamælirinn fer upp í e-h 400 eða e-h... og ég man ekki hvað Árni sagði að hann væri mörg hestöfl... alla vega hann er að komast sæmilega vel framúr formúlu eitt bílunum...

Og... svo... fór ég heim... fann Gumma þar og við fórum í búðir að kaupa fín fín föt... svo ég geti friðað samviskuna og eyði ekki öllum peningunum í DVD diska og rugl... Ene ftir það fórum við svo bara til M&P því ég átti afmæli fyrr um sólahringinn... og þau gáfu mér vekjaraklukku og MINI leatherman... með VASALJÓSI!!! þau vita alveg hvað ég er geðveikt fyrir svona súper handhæga hluti eins og síma með hallarmáli og leatherman með vasaljósi... og vekjaraklukku með rakamæli...

alla vega... eftir það þá fór ég heim og sótti Árna... og við horfðum á einhverja mynd...

hehe ég var sem sagt ennþá vakandi síðan ég vaknaði á föstudaginn og heimsótti Ómar í vinnuna

Síðan... sótti ég Ívar, Grétar, Gaua og Jökul til Gumma Jóns og við fórum upp í nauthólsvík í partíið hans Hjalta, svo sótti ég Ómar og klónið hans hana frænku hans og vilborgu og skutlaði þeim líka upp í nauthólsvík... og... já... Hjalti þekkir rosalega mikið af kvennfólki...

En ekki leið á löngu þar til Vilborgan okkar varð sybbinn og ég skutlaði henni heim til sín og hló soldið í leiðinni Brosandi lærði til dæmis hvað ein Eyjan hét... og hún heitir ekki Gleymerey heldur Engey... gott að vita samt...

Alla vega þá fór minn aftur í partíið og þá var minns alveg... "hmmm... Já..." svo ég dreif mig bara heim og skutlaði Oddrúnu í leiðinni... en ekki fyrr en við vorum búin að fá okkur pitsu... og svo bara... já... nenni ég ekki að gera þetta mikið lengra en ég komst heill heim... og fékk loksins svefninn sem ég hafði beðið eftir soldið lengi... Saklaus

$$$Björgvin Freyr

Já... ég fylgdi áætluninni minni og keypti Dempara og Bremsuklossa... svo ætlaði ég að setja Bremsuklossanna undir þá nennti ég því ekki því það var svo mikil rigning... og síðast skipti ég um bremsuklossa í geðveiku frosti... og það var ekkert gaman svo ég bara... Já ákvað að sleppa því til að skapa ekki fleiri slæmar minningar í kringum að skipta um bremsuklossa... auk þess ryfjaði Pabbi upp um daginn að þegar við skiptum um þessa bremsuklossa þá brutum við bolta og það var heví vesen í kringum það... En núna alla vega á ég þetta og ætla bara að nota aðstöðuna í Heklu um helgina og fá Gumma til að hjálpa mér með demparana... hann er nú einu sinni LÆRÐUR BIFVÉLAVIRKI...

En já... ég gerði þetta sem sagt og fór svo til Ómars og Oddrúnar og gaf þeim pitsu... en þau görguðu eitthvað og sögðust vera brjáluð... ég skildi þau ekki Ullandi

Alla vega það vildi ekki betur til en það að við fórum í smá bíltúr með litla bróður Hennar Oddrúnar hann Ísleif... hann er tólf ára og við vorum að gera alla vitlausa með því að vera saman þarna aftur í... svo við vorum aðskildir... og ég var settur frammí Skömmustulegur fórum í hesthúsið og hitta Hött hestinn hennar Oddrúnar... og svo fórum við á bókasafnið að skoða teiknimyndasögur... mér fannst það soldið spes... en það var geðveikt... ég alveg féll niður um nokkra bekki... ég var búinn að vinna mig uppúr teiknimyndasögunum með því að lesa "njósnari merktur X" bækur og eitthvað... og komst þaðan í Alistair Mclean bækur... og þaðan var ég kominn í Harry Potter og kominn í gömul handrit frá Mesapotamiu frá 6000 árum... sem sagt Gilgames Kviðu... En... ég alveg fór aftur strax á byrjunar reit aftur þegar ég sá allar þessar teiknimyndasögur hehe

Svo e-h... seinna um daginn þegar ég var löngu kominn heim þá fór ég að ná í Gumma í vinnuna... og keypti einhverja DVD mynd sem heitir "Peacemaker" frá 1995 og Árni sagði að væri alveg eins og 24... en... HÚN VAR ÞAÐ EKKI!!! eða... ekkert slæm mynd svosöm... en hún var bara ekki nógu súper kúl... En já... alla vega á leiðinni heim þá hætti bíllinn minn að hljóma svona -VRRRRrrrúúúúm- heldur meira útí -brúmm brúmm brúmm- og svo á gullinnbrúnni varð hann alveg -BOMMBOMMBOMMBOMM- svo við litum undir húddið í leit að trommu en komumst að því að eitt kertið hafði skoppað upp... og bíllinn gekk bara á þremur strokkum... og ég bara Óákveðinn "jæja..." en það var ekkert mál... við fundum kertalykil og löguðum þetta eins og ekkert var... þá sko... þið vitið brjáluðu lætin í bílnum mínum... þau valda víbring og sá víbringur hann skrúfaði kertið úr hægt og hægt síðustu mánuði... þannig að þetta var ekkert mál...

Þessi dagur var svo bara ekki mikið lengri...

En alla vega... þá er núna plan sko... því að núna á ég ennþá mikinn pening... og altaf þegar ég á ennþá mikinn pening þá eyði ég honum altaf í vitleysu... Nammi, Bíóferðir og pitsur... þannig að núna ætla ég að fara eyða honum í eitthvað af viti áður en hann fer allur í pitsur, Bíóferðir og nammi... og ég fékk tvær hugmyndir... annars vegar að kaupa mér Kameru... Myndbandsupptökuvél og taka hana með til Tenerife og e-h... taka myndir og svona... en... ég veit samt ekki... myndi ég NOKKURN tíman nota hana? ég veit ekki... Hin hugmyndin er að kaupa það sem mig vantar í Paintball byssuna mína... höbb, kút og grímu... og skrá mig í litboltafélagið... En... ég þekki náttúrulega bara Ívar og Hjalta sem eru í því... þannig að ég veit ekki... værum við eitthvað altaf að leika okkur í Paintball??? ég veit það ekki...þannig að... hvað á ég að eyða peningunum mínum í??? áður en ég eyði þeim öllum í fleiri DVD seríur af 24

GúrkutréðBjörgvin Freyr

ég á bráðum afmæli... sem sagt sama dag og HM byrjar Saklaus

Og Árni og Erna ákváðu fyrir löngu að ef mig vantaði virkilega eitthvað í afmælisgjöf þá væri það ruslatunna... svo í dag komu þau með þessa frábæru ruslatunnu sem ég er á góðri leið með að fylla... En það er ekki allt... þau gáfu mér líka gúrkutré!!! fyrir þá sem ekki vita hvað Gúrkutré er... þá er það sem sagt það sem gerist ef þú gróðursetur agúrkufræ í kókó pöffs... þá vex upp agúrka og úr agúrkunni vex nammi á tannstönglum Ullandi

Og eins og það væri ekki nóg þá fékk ég líka tveggja tíma birgðir af snickersi... sem sagt... 10 snickers Skömmustulegur hehe...

Lilja benti mér á öflugan leik... það er leikur sem einhver stendur fyrir og maður á að skila inn þremur strikamerkjum af Snickersi og þá fær maður verðlaun... og ég sem á sko... milljón og þrjú nammibréf hérna um allt... því ég hendi aldrei neinu... fyrr en núna þegar ég fékk ruslatunnuna... Þannig að ég er að fara mala þennan leik sko Hlæjandi

En já... á morgun sem sagt kemur svona frídagur í vinnunni og ég er loksins búinn að fá útborgað... í peningum... og á morgun get ég loksins keypt bremsuklossa, dempara og svo þarf ég að fara kaupa föt líka... þannig að... það áætlunin fyrir daginn á morgun

Hmm... í gær svo þá fór ég sem sagt á AA fund því ég virkilega ÞURFTI að fara á hann...að vísu beið bara fyrir utan því ég drekk víst ekki... og þar hitti ég glúrinn gaur... nefnilega gamlan vin hans Ívars sem við vorum stundum með og e-h í þá daga þá vissum við alveg að hann var e-h í dópi og rugli... svo eitt kvöldið vorum við e-h að skutlast með honum og hann bað okkur um að koma við á tvem stöðum og e-h á seinni staðnum þá e-h lét hann stelpu fá lítinn poka... og fékk pening í staðinn... og við bara... "jæja... hvað ÆTLI þetta hafi verið..." En já... hann var bara á fundi geðveikt sáttur bara og sagði að hann myndi ekki fyrir nokkurn hlut vilja fara aftur í ruglið því að það væri svo miklu betra að vera hjálpa öðrum alkóhólistum... Svalur Og... ég kann geðveikt vel við þennan gaur eftir að hann sagði þetta... hehe

34Björgvin Freyr

Í dag fór ég á samkomu í Fíladelfíu og ég fór á AA fund... Vinnan mín er svo fjölbreytt Brosandi

leikararBjörgvin Freyr

Leikarar í bandarískum þáttum... það er soldið spes... þetta eru allt svona gaurar og konur sem eru að reyna komast eitthvað... kannski til Hollywood... eins og í Joey þáttunum... þá er Joey alveg dæmigerður svona leikari, og maður er að sjá þá um allt... þú veist... Við Ómar höfum núna fundið flesta eiginmennina úr Desperate housewifes í 24 Skömmustulegur Tom Scavo... Hann leikur hótelstjórann í seríu 3, Rex van de camp leikur náunga sem er atvinnu pyntari í annari seríu... og Ómar fann Carlos einhver staðar... í annari seríu... það er bara tveir eftir... píparinn sem minnir á Pierce Brosnan og vondi maðurinn sem er pabbi Zach... Saklaus

hmmm... of mikið sjónvarp???

klippBjörgvin Freyr

Oddrún klippti mitt hár um daginn... og núna er ég orðinn eins og breskur skólastrákur... voða sætur eitthvað...

En... já... þeir sem hafa fengið að klippa mig núna eru

Vilborg: sem stóð sig alveg ágætlega... afleiðingarnar af því eru á ökuskirteyninu mínu... hehe
Ægir: ólíkt Vilborgu þá var það alveg gjörsamlega beint... og varð soldið svona prins valiant klipping
Díana: Vinkona Ægirs... ég hafði aldrei hitt hana og hún var gjörsamlega að skvetta í sig meðan hún klippti... samt nokkuð gott hjá henni...
Nanna: þegar hún var hálfnuð þá hætti hún og fór bara og það var pínu fyndið... Það var samt... já...
Mamma hans Hjalta: er auðvitað fagmaður og gerði mest sniðugt... þá einmitt var ég með þrjá eða fjóra liti í hárinu... held hún hafi gert hvítar og brúnar strípur og svart svona aftast... voða skondið
Oddrún: stóð sig MJÖG vel og gerði voðalega útpælda klippingu... með styttum og öllu... hvað sem það nú er :p
Oddrún: klippti mig svo Aftur því hún stóð sig svo vel... og núna sló hún sér alveg við... núna er minns voða sætur... hún að vísu klippti mig í eyrað... en það er allt í lagi ég var ekkert að notað það hvort er eð...

og þetta var allt frítt og það er langbest...

sólahringur...Björgvin Freyr

ég tók einhverja aðra næturvakt... og sem sagt vakti í alla nótt... svo í morgun þá gekk strætó ekki svo ég þurfti að hlaupa út með leigubílabeiðnir síðan er ég á leiðinni heim og fæ þá soldið skondið símtal sem var e-h... "já... Björgvin? þetta er Arnheiður nágranni þinn... er einhver heima hjá þér???" og ég bara "ööö nei... ætli það séu ekki allir farnir að vinna..." og þá sagði hún soldið spes setningu "Já... það er DAUÐUR MAÐUR í stigaganginum fyrir utan íbúðina þína..." og ég var bara... Hmmm... hvernig myndi Jack Bauer gera??? og sagði bara "já... ok... ég fer að verða kominn þangað eftir smástund... og ég skal... fjarlægja hann..." og hún e-h flissaði e-h og var bara "hehe ætlarðu að Fjarlægja hann???" og ég e-h... ennþá fastur í Jack Bauer gírnum og var e-h... "(andvarp) ...já..." og þá var þetta símtal ekki mikið lengra... en þegar ég kom heim var ekki einn gaur... og ekki tveir heldur ÞRÍR!!! svo ég bara... fjarlægði þessa þrjá dauðu gaura úr stigaganginum...

KörfuboltiBjörgvin Freyr

sjitt... ég fékk engann svefn á laugardagsnóttina af því að síminn hringdi altaf... Heiða, Gummi, Ásta og Ívar vöktu mig... og svo veit ég ekki hver hringdi í heimasímann... en hann var alveg óþolandi... OG það reddaðist alveg... ég drakk bara fullt af kaffi og svo í vinnunni þá e-h... þurfti ég að fylgja gaur á fótboltaæfingu hjá utandeildarlliðinu hans... og þar settist ég bara niður og var e-h... "Úff hvað ég er þreyttur... best að vera bara hérna..." en svo mættu ógeðslega fáir svo ég varð að vera með... og ég var sko EKKI að nenna því... var ískalt og ógeðslega þreyttur svo ég fór bara í markið og var bara e-h...

En svo loksins kláraðist vinnan... og ég fór heim að breyta stofunni... núna er hún sem sagt... ennþá glæsilegri en áður... Svo kom Halli og við fórum í körfubolta með Ástu og Gumma... Halli er rosalega langur svo hann náði öllum sendingunum hann er alveg hreint bara EKKI HÆGT... Við Ásta vorum yfir mest allan tíman þar til allt í einu Gummi og Halli uppgötvuðu samvinnu... og þá vorum við alveg dauð... Nei nei... þeir uppgötvuðu samvinnu alveg strax eiginlega en það var meira Halli sem uppgötvaði að hann var alveg að ná öllum sendingunum og þá fór hann að notfæra sér það og þá drápu þau okkur... og unnu með einhverjum fjórum stigum... þá fórum við Ásta í fýlu og nenntum þessu ekki lengur... Þögull sem gröfin Svo við fórum bara í bíó á Davinci lykilinn sem var sko ÞRÍR KLUKKUTÍMAR!!! hverjum dettur í hug að gera svona langa mynd? alveg bara of mikið...

En það var svosöm fínt...

En um daginn var líka útskrift! Ómar, Ægir, Sigrún og Karen útskrifuðust... Og ég fékk að fara fyrr úr vinnunni til að geta verið með... og það er í þriðja skipti á ævinni... (sem ég man eftir) sem ég byð um frí fyrir eitthvað svona... fyrir eitthvað annað en að ég slasi mig... hin skiptin voru hringferðin hjá Ægi og Ívari... og það frí fékk ég samt ekki... og svo var það afmælið hennar Vilborgar þegar ég fór á skauta í fyrsta skipti... En já það var bara ekkert mál... og hjúkkann spurði hvort hún mætti hryngja í mig ef einn sjúklingurinn væri með stæla af því að það var svo mikið af nýju fólki og af því að mér gekk svo vel að róa hann niður daginn áður... alveg sko Glottandi ég er þá orðin... pínu gamall og reyndur í þessari vinnu minni... þrír mánuðir... ha??? það er ekki slæmt...

En núna er draumurinn að fara á sjó græða nokkur hundruð þúsund og fara í hjálparstarf... helst á einhvern hættulegan stað þar sem er hætta á borgarastyrjöld... svo ég geti notað allt það sem ég hef lært af Jack Bauer úr 24 Ullandi hehe... híhí... nei nei... bara eitthvað hjálparstarf sem er ekki hugsað fyrir krakka... þar sem maður er ekki bara eiginlega eins og skiptinemi... þurfa búa hjá fjölskyldu og eitthvað...

En já... Hnúgli er kominn á netið... hann er á Hjaltihjalmarson.is og er alveg ógvænlega vel gerður... hehe...

KanillBjörgvin Freyr

Hafiði heyrt um að það sé ekki hægt að borða heila matskeið af kanil??? jæja... það var reynt í 70 mínútum og einhverjum tókst það nú... en ekki öllum... og það er greinilega aðeins erfiðara en fólk heldur... málið er nefnilega að munnvatnið býr til kúlu úr kanilinum og ef maður reynir að gleypa hana þá tekst það ekki en maður andar að sér kanil og fær smá hóstakast...

EN!!! ég gerði hetjulega tilraun til að afsanna þetta allt saman... og... að sjálfsögðu tókst mér það með þrjósku og kænsku hehehe... það var viðbjóður og tennurnar mínar urðu gular... en... málið er að það er víst bara við allra ALLRA hörðustu hörkutólin sem getum þetta...

Og... Ómar er ennþá í Frakklandi enda var hann á úrslitaleiknum... Arsenal - Barcelona... og það endaði 2-1 fyrir barcelona... það var hellidemba á vellinum og Ómar vissi ekki einu sinni af rauða kortinu... eða... rauðu kortunum... voru ekki tvö??? Alla vega alveg magnað

Allt að gerast á einum stað... við erum að fara fá nýtt tilfelli... Sem ég má ekki tjá mig meira um sökum þagnarskyldu... hnja hnja...

En þá bara má ég varla segja mikið meira... svo ég bara...

já...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...