veit ekki hvað ég ætla skrifa hérnaBjörgvin Freyr
nýjasti Muse diskurinn er eiginlega bara fínn, voða sniðugur... ég skilaði Justin Timberlake diskinum sem ég gaf Árna í jólagjöf og hef ekki ennþá látið Árna greyið fá Muse diskinn sinn... MWAHAHAÉg á ferðum mínum um jörðina... í framtíðinni þá ætla ég að skrifa skáldsögu og hún á að vera um ofur súper hetju... ekki ólíka Jack Bauer og James Bond... hmmm hann þyrfti þá að heita enhverju J,B nafni eins og Jónatan Brjánn eða eitthvað... hmmm... alla vega þá á þessi ofursvala persóna að vera alveg bara... venjulegur gaur sem kjánalega flóknir hlutir gerast í kringum... svo í rauninni ætla ég ekkert að skrifa um þessa persónu... frekar svona... skrifa um alla í kringum hann og láta þá altaf segja hvað þeim finnst... ekki það sem hann er sjálfur að hugsa... svo kannski seinna leyfa fólki að komast að því hvað hann er að pæla... mig vantar eiginlega fyrirmynd...
En hmmm... Vilborg vill fá sögustund en ég hef bara engar sögur á takteinunum svo hún er óheppin... geta ekki lesið sér sögur á blogginu mínu... jæja... hún verður bara senda mér SMS í staðinn hehehe
2007Björgvin Freyr
HAHA það kom svo bara ekkert framhald...Jamms... alla vega... ÞAÐ er komið heilt nýtt ár! það er 2007 og altaf í byrjun hvers árs fæ ég altaf svona... "ég get gert hvað sem er" dellur... og ákveð endalaust margt sem frestat svo bara fram á þar næsta ár... og verður svo ekkert úr í rauninni... svo... ég eiginlega þori því ekki þetta árið líka... því þá verður aldrei af því... En já skiptir ekki það miklu máli...
Jólin eru kominnBjörgvin Freyr
a.m.k hjá mér, ég er að vinna um jólin svo ég ákvað að flýta þeim aðeins, fara í Jólahlaðborð og litlu jól viku fyrir jól... Þetta leit samt út fyrir að ætla verða smá mistök í upphafi. ég er búinn að vera í tvo daga núna að reyna redda mér fríi frá næturvaktinni sem ég átti að eiga og hringdi í óteljandi gaura og deildir til að redda mér fríi, það gekk vægast sagt illa. Nóttina áður var ég á næturvakt og kom heim um hálf tíu og byrjaði strax að hringja... það gekk ekkert svo ég sofnaði um ellefu, en ég ætlaði samt að hringja í Birgi næturstarfsmann aðeins seinna svo ég slökkti ekki á símanum... og þá byrjaði þetta... Síminn stoppaði ekkiGummi byrjaði að hringja einhvern tíman um Hádegið og svo aftur 13:35 þá svaf ég í tuttugu mínútur þá hringdi Erna hans Árna (13:55), tuttugu mínútum seinna hringdi Ægir (14:24), svo Gummi aftur 50 mínútum seinna (15:13), tuttugu mínútum síðar hrindi Einar (15:38), Gummi svo aftur 16:12 þá fór ég í sturtu og hann hringdi svo aftur 17:31 og þá fór ég að leggja af stað að ná í hann og hann hringdi aftur 18:08... Var að skoða símann minn... og þegar enginn var að hringja í mig og ég var ekki að reyna sofna þá hringdi ég í meira en 30 númer að spurja fólk hvort það gæti tekið vaktina mína... og ég er ekki að ýkja neinar tölur hérna... þetta er allt eitthvað sem ég fann út í símanum mínum þegar ég var að bíða eftir matnum mínum með Árna á Ruby tuesday áðan... En allt þetta var samt ekkert mál... Ég fór í fínustu jakkaföt og vantaði bara bindi og gjöf handa Ómari... út af litlu jólunum... svo við Gummi fórum í Hagkaup og ég keypti bindi og skotskífu og litla leikfangabyssu fyrir Ómar... sé soldið eftir að hafa ekki látið eina DVD mynd fljóta með... En... þegar Gummi var að skoða DVDið þá sá ég... FIMMTU SERÍU AF 24!!! ég er búinn að bíða eftir henni í marga mánuði!!! og hún er loksins kominn :D endalaus hamingja... allur pirringur dagsins hvarf á fimm sekúntum... ég leit ekki einu sinni á verðið heldur bara dreif mig í að kaupa hana og svo hittum við gaurana...
Guðni Birgirs tók mig á eintal til að segja mér að hafa meira sjálfstraust og að ég sé töffari... og ég kunni ekkert að bregðast við því svo ég hló bara og varð ferskja... en hann var bara "Björgvin! ég er að segja þér það... þú verður að hafa sjálfstraust... trúiru ekki að ég sé að segja satt? ertu að kalla mig lygara???" og maður kallar ekki Guðna lygara svo... ég er orðinn töffari ;) hehehe
Svo fórum við á Broadway og höfðum geðveik læti... Einar og Oddur þá mest að sjálfsögðu... og það var soldið kvartað yfir okkur... Þar var líka Vilborg að vinna allgjör íspinni því hún var að sjá um ísinn... En svo dreif ég mig á litlu jólin þegar ég var búinn að James Bondast í smástund...
Síðan komu litlu jólinn... og... nei vá... líttu á klukkuna!!! ég er að fara verða seinn...
- Framhald síðar -
00:59Björgvin Freyr
Vilborg! þetta er allt þér að kenna ;) þú byður um blogg og þá kemur eitthvað svona... iss... jæja... sjáðu bara...Þegar ég var lítill... þá hofrði ég á ALLAR James Bond myndirnar og fannst þetta bara alveg mesta hetja í heimi... Núna er ég hins vegar búinn að fara á wikipedia og les mér til um hetjuna mína... Og... kemur ekki bara í ljós að Bækurnar, þær eru eiginlega bara geðveikt skemmtilegar... eða... a.m.k sagan á bakvið þær allar... alveg... já... Það er alveg sko... í sögunum þar eru verkefnin ekki eins mikið "James... Þú verður að fara til Usbekistan og bjarga heiminum... Nenniru því???" Þar er þetta virkilega "James... nenniru að rannsaka þennan... Þarna gaur... hann vann mig í bridds" hehe það er einmitt söguþráðurinn í tveimur sögum... En þetta er samt meira sko... Ok... fyrsta bókinn hún er eiginlega voðalega lík myndinni sem kom út um daginn... sko... söguþráðurinn er ó fljótu bragði alveg eins... meira segja setningin "The bitch is dead now" hún er í bókinni líka... pyntingaratriðið... líka í bókinni... og Vesper lynd... LÍKA!!!
það sem á eftir að gera seinna í lífi þessa njósnara er að hann á eftir að giftast, hann á eftir að vera sendur á heilsuhæli því hann reykir og drekkur of mikið, hann á eftir að verða eitrað fyrir og sagan endar á því að hann lognast út af og bara... já... er dauður eiginlega... og hann á eftir að fara til japans, missa minnið! OG HALDA AÐ HANN SÉ JAPANSKUR FISKIMAÐUR!!! Ian Fleming var nefnilega soldið mikið altaf að reyna enda þessar sögur, en ætli hann hafi ekki altaf hugsað "æææ... hann má ekki deyja núna, búinn að vera svo mikil hetja hingað til..."
Höfundurinn Ian Fleming er eiginlega orðinn meira hetjan mín en James Bond... því þetta er soldið mikið byggt á honum... og einhverjum þýskum double agent sem hét Dubus eða e-h... og svo einhverjum enn öðrum sem neitaði skipunum og bjargaði 800 manns einhvern tíman...
Einhvern tíman... kannski... einhvern tíman í framtíðinni langar mig að skrifa svona sögur... Ekki kannski SVONA sögur... en a.m.k um einhverja persónu sem er ekki endilega miðpunkturinn í sögunni heldur... bara áhorfandi sem spennandi hlutir gerast í kringum... Ian fleming var altaf að reyna gera þannig... hann meira segja gerði þrjár sögur þar sem James Bond var persóna en ekki það sem sagan var virkilega um... Ein sagan heitir "The Spy who loved me" og það var svo gerð mynd eftir henni... en bara í bókinni þar Kemur James Bond ekki fram fyrr en í endann... En Ian segir víst einhverstaðar að aðalpersóna sögunnar sé til í raun og veru og hafi sent honum þetta handrit... og hann hafi svo bætt James Bond við í endann. hinar tvær sögurnar eru um í rauninni James Bond og vin hans Barbí... ekkert grín... hann heitir Barbey í alvöru... og þeir fara í siglingu með gaur sem heitir Krest og er persóna í einni myndinni, og þar er sá gaur vondur og er með bögg... og þetta fjallar um að þeir eru að leita að einhverjum fisk, sem þeir svo finna og einhver myrðir Krest og James Bond finnur líkið og gengur frá öllu til að sleppa við rannsókn og finnur svo út hver var morðinginn en gerir ekkert í málinu... því... Krest var vondur gaur með bögg... Og svo í þriðju sögunni þar er James Bond í leiðinlegu matarboði og einhver segir honum sögu, einhvern veginn ekkert spennandi sögu með 0% hasar... Og í lokinn öfundar Bond þennann gaur af því að fá nú að lifa eðlilegu lífi...
hehe... þetta er mjög fræðandi blogg... ekkert sérstaklega skemmtilegt eða spennandi... en mjög fræðandi... hehehe
hóst hóst... mmmm daBjörgvin Freyr
Það er örugglega það leiðinlegasta í heimi að vera veikur... og ef það er eitthvað verra þá hlýtur það að vera að vera veikur mjög lengi... ég er að verða kominn í hela viku af þessu, sjitt... En sem betur fer er Ómar til staðar og hann lét mig fá svona dæmi til að downloada... ég er alveg búinn að vera húkkt af Prison Break síðustu daga... gallinn við þetta er einmitt líka hvað ég eiginlega borða ekkert meðan ég er veikur... ég má eiginlega alls ekki við því svo ég ætla setja veikindin á pásu og hætta því rétt á meðan ég hleyp út í 10-11 og kaupi mér eitthvað... svona fyrst ég er nú eiginlega að verða svangur...Ómar átti afmæli í fyrradag og hann eyddi deginum í að læra eins og alvöru háskólastrákur... annar háskólastrákur einmitt kom hingað og hjálpaði Gumma við að flytja og vesenast...
Hmmm Það er svo sannarlega að fara koma að þessu, mér sýnist það svo sannarlega... Við erum búin að mála allt og setjum á sölu á morgun þá er bara að vona að fasteignasalinn standi sig vel og húsið seljist sem fyrst... ég veit að það eru fimm hús búin að seljast hér í götunni síðustu tvo mánuði... og þau eru einmitt í sama verðflokki og mitt hús... ég komst líka að því að það eru næstum 200 íbúðir í götunni minni... og 15 á sölu... eitt þeirra er búið að vera á sölu núna í heilt ár... hmmm... Það er eiginlega bara... soldið horror...
Í dag er þriðjudagur og þá einmitt eru Oddrún og Heiða að fara keppa í körfubolta... Fjölnir Vs KR í Rimaskóla klukkan... korter yfir sjö... mest spennandi leikurinn örugglega því að KR er í fyrsta sæti og Fjölnir er í öðru sæti... og liðin erubæði með 6 unna leiki og 0 tapaða KR er samt búnar að skora 10 stigum meira á tímabilinu... vona bara að ég verði ekki hadónýtur á morgun... því mig er búið að hlakka til soldið lengi...
Ómar fór í fyrsta prófið sitt í dag og Vilborg er einmitt búin í prófum... á bara eitt eftir... en hún náði öllu eins og við var að búast... Ég vissi það auðvitað allan tíman því í gegnum tíðina hefur hún altaf verið stressuð yfir að falla og verið alveg bara 100% viss um að vera fallin síðan fæ ég altaf símtal alveg "ÉG NÁÐI ÖLLU!!!" hehe... nema einu sinni... og þá náði hún endurtökuprófinu...
Við Ómar erum búnir að prufa secret agent hæfileika okkar í Playstation og við erum komnir með það á hreint... við erum Ethan Hunt og Guffi í samstarfi... ég er svona "bíddu þarna... ég ætla taka þennann gaur út" og Ómar er svona "hmmm... hvað gerir þessi stóri rauði takki???" hahaha... Aldrei upplifað annað eins :) Eins gott þið þurfið aldrei að treysta á okkur Ómar til að bjarga heiminum... ekki það að nokkur maður myndi treysta okkur fyrir neinu öflugra en kínverjum þegar kemur að vopnaburði... híhíhí
Aaa... ég get ekki skrifað meira því ég hef ekkert farið út úr húsi í viku...
BúglíbúglBjörgvin Freyr
Ok... Verandi stunðningsfulltrúi á Geðdeild Landspítalans gerir mér kleift að verða vitni af margri geðveikinni og kynnast fólki sem er vel tæpt á geði, síðan er ég að lesa svona bók sem fjallar um löggur og bófa og bófinn í sögunni er einmitt snaaaargeðveikur... Og þetta er bara... örugglega raunvörulegasta geðveiki sem ég hef nokkurn tíman orðið vitni af í bók... Bókinn heitir "Skáldið" og er eftir... Michael Conelly eða e-h... Svo að vísu þarf maður ekki einu sinni að vera vinna á geðdeild til að kynnast fólki sem er andfélagslega persónuleikaraskað... eða geðklofar...Mikið er samt nammi tilveran snjöll... Núna til dæmis þar sem ég sef ekkert of mikið þá dreymir mig ekkert of mikið heldur... En maður getur farið í Nammiland og KEYPT sér "Draum" það er alveg magnað... maður getur meira að segja keypt sér Rosa draum... stundum á nóttunni þá þarf ég að halda mér vakandi og þá vantar mig orku... og núna getur maður barasta keypt sér svoleiðis líka
Eins og þegar Sigrún var alveg DÆMALAUS... þá fékk hún DAIM í afmælisgjöf... og árið eftir... þá gáfum við henni topp... til að toppa dæmið frá því í fyrra... hahahaha... og svo... ef maður er alveg að klúðra öllu þá getur maður altaf verið einu skrefi á undan sér og keypt sér... TROMP! svo er altaf líka hægt að kaupa HITT og ÞETTA
ooo... búgglíbúgl...Ómar á bráðum afmæli... 10. DES til að vera nákvæmur... daginn eftir eru Heiða og Oddrún að fara keppa við KR og það verður hörkutólaleikur upp á líf og dauða... Svo... ég ætla bíða eftir þvottavélinni...
ekkert smá lítil jólBjörgvin Freyr
Ahhh... Pakkajólin eru ákveðin, flest jól hafa einmitt voða mikið gengið út á að vinna í Osta&Smjörsölunni og setja í ostakörfur handa fyrirtækjum, Ekki mikill tími farið í að kaupa jólagjafir því maður er yfirleitt svo þreyttur í fótunum til að labba í búðum restina af deginum... Samt yfirleitt hef ég nú samt fundið einn eða tvo daga til að koma mér í Kringluna og leita að gjöfum, en samt eiginlega aldrei fundið neitt og verið pirraður og þreyttur og lagt af stað heim... og þá hefur það oft gerst að ég keyri á eitthvað... eins og... vegg eða annan bíl...En einu sinni fór ég einmitt með Ívari að kaupa jólagjafir og þá gáfum við allt í sameiningu... Og ég held að Sigrún hafi ennþá ekki fyrirgefið mér jólagjöfina fyrir það ár... Við Ívar nefnilega héldum að við værum soldið fyndnir og... ég veit ekki alveg hvernig en okkur datt í hug að gefa henni litla svipu... eða písk... Sem Ívari fannst ódauðlega fyndið svo ég vonaðist eftir að Sigrún myndi sýna sömu viðbrögð... Þegar ég svo kom heim þá bjó ég til voða fínt handteiknað listajólakort því að jólin hafa einhvern vegin verið meira um jólakortin hjá mér frekar en gjafirnar... Síðan þegar Jólin loksins komu þá sýndi sigrún mömmu sinni kortið sem þeim fannst báðum alveg stórmerkilegt
svo fjölskyldunni hennar Sigrúnar fannst forvitnilegt að vita hvað listamaður á borð við þann sem hafði gert þetta kort myndi nú gefa litlu stelpunni... og öll fjölskyldan var á staðnum... Afi og Amma og allir... Ég get eiginlega ekki ýmindað mér fyrstu sekúnturnar eftir að Sigrún opnaði pakkann meðan hún áttaði sig á hvað þetta var... En næstu viðbrögð voru í meira lagi skiljanleg þegar hún reyndi að fela fyrir öllum hvað hún hafði fengið... en það að sjálfsögðu virkaði ekki og fjölskyldan fór að átta sig á að litla stúlkan þeirra var að verða fullorðin...Þess vegna var ég Mjög ánægður með að vinahópurinn ætlaði að halda litlu jól á næsta ári og ég gaf Oddrúnu lítinn sætann bangsa hest. Sigrún einmitt gaf mér á móti lampa, möppu og hálsmen... Sem ég hefði allt getað gengið um með án þess að hneiksla neinn...
Svo þessi jól ætlum við svo sannarlega að endurtaka pakkajólin eins og í fyrra og ég að sjálfsögðu gæti ekki verið hamingjusamari því í rauninni myndi ég ekki treysta mér til að endurtaka venjuleg jól aftur, af hættu við að klessa bílinn minn eða koma af stað fjölskyldudeilum... En einmitt meðan litlu jólinn eru haldinn þá verð ég einmitt staddur á jólahlaðborði á Broadway held ég... Með Einari og fleiri Fljótshlíðingum... Þar sem ég gat að sjálfsögðu ekki neitað tækifæri af að vera í fínustu jakkafötum... sérstaklega ekki eftir að hafa séð James Bond tvisvar í bíó og eftir merku uppgötvunina að James Bond getur verið ljóshærður og með stór eyru... Þannig að 16. Des er greinilega sá dagur sem ég hlakka mest til... Ef mér tekst að redda mér fríi úr vinnunni.
hmmm... þið missið heilafrumur af að lesa þettaBjörgvin Freyr
Ok ef það er eitt við mig sem ég gæti lagað þá væri það hvað ég lofa altaf einhverju sem ég engan veginn nenni að gera en verð samt að gera til að vera ekki ömurleg sál og fara til helvítis... yfirleitt er það nú að ég lofa einhverjum vöktum sem ég nenni engan vegin að gera en ritarinn okkar er bara með einhvern Krúttsvip sem er jafnframt ákveðinn þannig að hún segir einhvern veginn "Plís taktu vaktina... fyrir mig
nema þú sért algjör auli og nennir ekki
" hehe... hún er samt ekkert að reyna það held ég... hún er bara svona týpa... En það er ekki það sem ég er að meina... heldur setnigninn sem ég segi næstum hverja einustu helgi við einhvern "hringdu í nótt og ég skal sækja þig" síðan kemur það mér altaf jafn mikið á óvart þegar síminn hringir um nóttina og ég svara og heyri í drukknum rum niðrí bæ sem spyr hvort ég sé til í að ná í hann... og gagnkvæmt öllum mínum betri hugmyndum og þreytu þá fer ég altaf á fætur nema örfáum sinnum og keyri niður í bæ til að sækja einhvern óheppin fýr... sem í rauninni er mjög heppin að ég skildi vakna...En þessa nótt einmitt segi ég við Gumma og Árna áður en ég keyri þá niður í bæ "já já hringið bara í nótt" og allar heilafrumurnar í hausnum á mér stoppuðu og lömdu sig í ennið
nema ein af því að hún er það sem við getum kallað þorpsfíflið og er örugglega ástæðan fyrir að ég geri þetta altaf... Árni segir þá að hann muni hugsanlega taka bara Taxa og ekki Gummi... Hann er nokkuð viss um að hann muni hringja... og á þeim tíma er ég einmitt nokkuð viss um það líka... En... síðan vaki ég langt fram eftir og horfi á My name is Earl og borða nammi á fullu langt fram eftir nóttu... þangað til ég að lokum sofna með wine gums í kjaftinum... og þegar ég vakna er mér til mikillar furðu Árni í símanum en ekki Gummi... Og í símanum er Árni hressari en andsetinn héri sem hefur verið svikinn of oft af grænu marmelaði... og alls óskylt því er Gummi ekki með honum sem fær mig til að velta fyrir mér af hverju er Gummi ekki búinn að hringja? svo segi ég við Árna að ég sé rétt ókominn þá stoppa aftur allar heilafrumurnar mínar og slá sig í enni og líta svo á þorpsfíflið sem auðvitað brosir út að eyrum... þegar ég skelli á Árna tek ég eftir að Gummi hefur að vísu reynt að hringja svo ég hringi í hann í báða símana hans og fæ ekkert svar... ég hringdi örugglega alveg fimm sinnum bara á leiðinni niður í bæ... síðan í beygjunni framhjá hundaeyjunni þar sem maður kemst af miklubrautinni yfir á sæbrautinni ákveður bíllinn að fara yfir á sjálfstýringu og ég þarf ekki að stýra lengur...
þá sem sagt tekur hann bara sjálfur beygjuna og ég þarf varla að gera neitt þangað til að lokum hann missir sig í gleðinni eins og marsipan sem hefur verið tekið of oft í misgripum fyrir eplasafa og snýr sér heilan hring... auðvitað snerti hann engan ljósastaur þegar hann tók þennann litla spinning tíma því þá væri þetta frekar léleg sjálfstýring... En sem betur fer fór ég nú heilan hring þannig að ég þarf ekki að snúa bílnum við og held áfram eins og ekkert hafi í skorist... þegar ég kveiki á útvarpinu einmitt þá er James Bond lagið í útvarpinu og ég fer að hugsa um allt sem Einar sagði við mig fyrr um kvöldið um það hvort það sé í lagi að krydda frásagnir af og til og ég ákveð að ef ég hitti einhvern ókunnugan niðrí bæ þá ætla ég svo sannarlega að segja honum að það hafi verið gella bundin á veginum og ég hafi velt tólf veltur... og verið á Aston martin... Þegar ég kem loksins niðru í bæ fæ ég þá flugu í höfuðið að bróðir minn hafi kannski ákveðið að labba heim og geti ekki svarað í síma því honum sé svo kalt... En ég reyni að velta því ekki of mikið fyrir mér og keyri Árna og Rafn heim til sín Árni er ennþá svona eiturhress eins og hann hafi loksins klárað að lesa bók um tilgang glasamottunar þangað til hann sofnaði í farþegasætinu... En það hindraði mig ekkert í að koma þeim tveimur heim til sín... það sem í rauninni hefði getað sett smá strik í reikninginn var að Árni var alls ekkert viss um að við værum komnir upp í Gullengi þegar við vorum í rauninni komnir þar fyrir utan... ástæðana fyrir því að hann var ekki viss var að hann hafði hvorki vilja né áhuga á að opna augun og sjá hvar hann var og vildi frekar bara giska... og sú aðferð benti til þess að hann væri rétt fyrir neðan Hlemm... En ég var ekki viss um að það væri rétt því þá væri einmitt BMW þar sem deildi númeraplötu með BMWinum sem Árni er einmitt að passa... svo Árni tók þá afdrifaríku ákvörðun að opan augun... og fara inn... Eftir það ákvað ég að ganga úr skugga um að Gummi væri ekki örugglega kominn heim til sín því ekki myndi ég vilja að hann frysi við að labba heim og myndi ekki hringja því honum væri of kalt á puttunum... svo ég fór til þess stað sm hann myndi sofa á... en á leiðinni stóðst ég ekki mátið að taka örfáar handbremsubeygjur á Borgóplaninu... þegar ég hafði fullnægt öllum heilafrumunum mínum með nægu adrenalíni þá fór ég til mömmu og pabba og sá Gumma þar í sófanum svo ég hélt heim á leið... glaður yfir að geta loksins farið að sofa...
LygarBjörgvin Freyr
einhver lítill tappi í Ísland í bítið sagði núna um daginn að þegar strákur og stelpa hittast þá ljúga þau geðveikt mikið að hvort öðru... svo þegar þau kynnast betur þá ljúga þau altaf minna og minna... Ég held að strákurinn hafi bara ekkert verið langt frá sannleikanum... Eitt sinn skutlaði ég vini mínum og stelpunni sem hann ætlaði að eyða nóttinni með og hann var sem sagt... að vinna í sláturhúsi en það sem hún hélt var að hann væri að vinna með fötluðum börnum þegar hann væri ekki í lögfræðináminu... og líka þegar ég hitti kanana vini Einars og strákanna þá sögðu þeir öllum að ég væri Firefighter og væri altaf að saving lives... því þeir nenntu ekki að útskýra allt á ensku... og allt í einu var minns bara voða vinsæll... boðið til Atlanta með þeim og ég veit ekki hvað... hehe síðan auðvitað tók ég nokkur test á netinu til að komast að því hverskonar ofurhetja ég væri(Spiderman), hvernig persónuleiki ég væri, hversu góður ég væri, hvernig ég myndi deyja... og þar var í testinu sem segir hversu góður ég er... þar var spurning "finnst þér allt í lagi að ljúga að ókunnugum?" sem er eiginlega bara þetta... það sem flestir gera... bla... ég kannski búinn að tala of mikið við fullt fólk í kvöld... farinn að tala eins og það... híhíhíhiNú jæja...
ég á snakk og kók... en playstation talvan er einhverstaðar í heimsóknum...
MIG langar í hund... hvar get ég búið með hundinum mínum? ætti salamandra að duga í bili? þangað til ég er orðin nógu öflugur í að sjá um dýr...
Ég er annars farinn að hafa áhyggjur af hvað ég hef aldrei neitt að skrifa um hérna og að altaf þegar ég byrja að skrifa þá lít ég yfir blaðsíðuna og þá er bara geðveikt mikið röfl í gangi... hmmm já... það gengur ekki og ég er að hugsa um að byrja upp á nýtt og líta þá helst á besta sögumann sem ég hef man eftir... nefnilega Earl Hickey úr my name is Earl... þá kannski verður bloggið mitt meira spennandi... hehe... en það verður að bíða því ég á kók og nammi og nenni ekki að blogga meira hehe
4 hrBjörgvin Freyr
James Bond er ljóshærður með stór eyru
BESTI Bond EVER... Soldið leiður samt ég lofaði Pabba að fara með honum á hana... En hann var svo þreyttur eftir eitthvað heilunardæmi að hann vildi ekki koma með næstu daga...Svo við Gummi og Árni fórum bara... 
Annars... þarf ég eiginlega að vakna snemma... og mæta í vinnu... REM svefn á fjórum tímum??? er það hægt? hmmm