skrifskrifBjörgvin Freyr

Núna er skólinn byrjaður hjá flestum Brosandi það er soldið skrítið að vera ekki í skóla lengur... e-h... eins og Ægir er að komast að núna bara e-h... vinna og sjá á MSN að allir eru að læra heima og e-h... en... þannig er það nú bara.

Í næstu viku er ég að fara hitta einhvern Ólaf, hann ætlar að segja mér frá hjálparstörfum Rauða Krossinns og kannski verð ég bara farinn út á vit ævintýranna eftir nokkra mánuði eða vikur... að bjarga heiminum... ég var að hugsa... hvert ætli ég fari svo... og datt í hug að kannski verði ég bara sendur til Líbanon að hjálpa til eftir Ísrealana og Hisbollah stríðið... hver veit... eða kannski bara e-h til Uzbekistan eða suður Ameríku... mér er alveg sama... eða svo kannski líst mér ekkert á það sem maðurinn er að segja... kannski er þetta bara e-h allt annað en ég er að hugsa... og þá er bara best að sleppa þessu og finna mér nýja dellu... Svalur

þetta blogg er ekkert sniðugt...Björgvin Freyr

ég veit ekki alveg til hvers ég er að hugsa um að reyna blogga hérna

.Björgvin Freyr

I´l be back Svalur

er eitthvað líf eftir...Björgvin Freyr

er líf eftir dauðann???                 Já!!!

gott að það er komið á hreint...

En er líf eftir Tenerife? ég veit það ekki... ég veit ekki einu sinni hvort það er eitthvað líf eftir þessa nótt... ég er að fara sækja Ívar og Hjalta úr Herjólf því þeir voru í eyjum... og ég sæki þá á bílnum hans Ívars sem er... að mínu mati soldið bilaður... en... hvað veit ég... alla vega... ef þetta væri minn bíll þá myndi ég ekki hreyfa hann eins og sést best á því að minn bíll er helmingi minna bilaður og... ööö... já ég er ekkert að hreyfa hann... megið kalla mig hræðslupúka (en þið gerið það líka bara einu sinni því ég viðurkenni það aldrei)

Alla vega ég ákvað plan B því ég vildi ekki fara út í Þorlákshöfn klukkan fjögur í nótt á biluðum bíl svo ég hafði samband við Oddrúnu sem er... bjargvættur í húð og hár... og hún samþykkti að keyra... en síðan flæktist málið og einhvern veginn endaði þetta með því að við erum allt í einu að fara á bílnum hans Ívars aftur... og Oddrún ætlar sem sagt að koma með... eigi veit ég hví hún gerir slíkt... en það er ekki mitt mál... ég er feginn því bíllinn er bensínlaus og ég á ekkert kort og ekki krónu...

En ef við lifum þessa nótt af þá tekur þriðjudagurinn við í öllu sínu veldi... og jafnvel öðru veldi því ég er að fara gera ýmislegt fyrir þessa blessuðu Tenerife ferð... ég á allt eftir... Jedúddamíanmín...

Gráðugur

síðan loksins koma tvær vikur af Tenerife stuði... og svo kemur í ljós... hvort það er eitthvað líf eftir Tenerife?

erum við að fara breytast í skrímsli?Björgvin Freyr

ég sá eitthvað skrítið í gær... í símanum hennar Heiðu er tölvuleikur sem er sko... ööö... minnir eiginlega bara á gamla alvöru tölvuleiki e-h... í þessum leik er maður riddari sem er að bjarga prinsessu og e-h... einhvern veginn kemur bróðir manns inn í þetta og maður byrjar ekki með neitt sverð né neitt... og ég e-h... fór að hugsa... "hvar endar þetta???" ekki sem sagt... "hmmm ætli leikurinn endi á því að maður bjargi prinsessunni... eða ætli komi framhald?" nei... ekki þannig heldur... "ætli leikir í símum verði altaf fullkomnari og börn fara festast yfir þessu og áður en við vitum af verða börnin okkar með ónýta þumalputta og ógnvekjandi nærsýni..."

Dýr aðlagast náttúrunni á mörgum árum þróa með sér nætursýn, læra beita verkfærum og svona... og hvernig haldið þið að við verðum búin að aðlagast eftir 200 ár? erum við ekki eiginlega að aðlagast í vitlausa átt? er okkur eiginlega ekki að fara aftur?

jaaa... ég nenni ekki að hugsa mikið meira um þetta því þetta er svo mikil vitleysa... en pælið samt í því... maður byrjar ekki einu sinni með sverð í þessum leik...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...