lúðiBjörgvin Freyr

Ég var á næturvakt og er að vakna núna... og einmitt... fyrir næstu næturvakt er ég kominn með nýjustu þætti af 24, Heroes, Prison Break og Rome. hehehe... þannig að næsta nótt er svo gott sem búin... í kvöld er svo Davíð með fyrirlestur heima hjá sérum hvernig heimurinn varð til og hann sagði mér endilega að mæta... hmmm... svo var hann eitthvað " já svo verður alveg GULLFALLEG stelpa frá bandaríkjunum þarna...alveg gullfalleg... og kornung" svo ég var eitthvað... KORNUNG?!?!? ég held aðmaður segir ekki svona þegar maður er að reyna selja bíla... en það býttar ekki miklu máli, ég var búinn að segjast ætla mæta þarna daginn áður...

Fólkið sem skoðaði í gær vissi eiginlega bara ekkert hvað það átti að spurja um... kannski ekki skrítið... e-h að koma inn í tóma íbúð og eiga að skoða... hmmm... hvað er ég að skrifa? er ég farinn að röfla? ok skipta yfir

núna er ég með 24 inná tölvunni í... marga klukkutíma þangað til ég horfi á það... hvernig á ég að lifa þetta af... AAAA anda inn, anda út, anda inn, anda út... ekki að meika þetta...

Hey ég gerði teiknimynd í nótt... alveg kyngimagnaða... hún var um mann sem var rændur... og svo... já... svo var ég ekki kominn lengra... hann var bara rændur... síðan átti að vera meira... ég er að hugsa um að gera eitthvað meira með það... kannski jafnvel koma út úr lúðaskápnum mínum og hafa þetta ofurhetjusögu... hmmm... HMMM... kannski æég geri það bara... hehehe ég er hvort eð er að fara á fyrirlestur í heimahúsi um hvernig alheimurinn varð til... kannski er ég löngu kominn út úr lúðaskápnum

krappí DjonaþanBjörgvin Freyr

JÁ núna fara hjólin að snúast... það er sjúkraliði að fara skoða íbúðina mína! ég var með númerið hennar af því að hún hringdi og bara með þær upplýsingar gat ég fundið út hvar hún á heima, hverjir búa með henni, hvar hún vinnur og alveg... hvar í húsinu hún vinnur... hmmm krípí... fann ekki hvaða skóla hún var í... en það skiptir engu... mwahahaha...

Núna í morgun hringdi Hjölli og hann var að átta sig á að næturvaktir og háskóli er ekki góð blanda... en hann sagði að það væri samt betri blanda en að vera á sjónum og í skóla... sem ég held að sé alveg rétt... EN málið er þetta... Kannski kaupir stelpan íbúðina mína, Ég ER að fara hætta á næturvöktum og ef þessir tveir hlutir gerast... þá er ég bara að fara hætta... að vinna á klepp og farinn út í heim... mér finnst eins og þetta sé LOKSINS að fara gerast... kannski er það bara út af því að ég er búinn að vera einhverfur í tvo mánuði og ekki talað við neinn og ekkert farið út úr húsi nema til að vinna... og borða... hmmm... jæja... alla vega hvernig sem þetta allt virkar... þá er allt að gerast...

vonandi...

MafíanBjörgvin Freyr

Í dag fékk ég að ferðast með strætó í Grafarvoginn út af vinnunni minni og á leiðinni til baka var tropðfullur strætó af krökkum... tíundabekkingum sem voru sem sagt nýkomin úr kynningu í Borgó. Fyrst fannst mér ekkert sérstakt við þangað til ég tók eftir að þeir héldu allir á mynd af mér, Ægi, Sigga, Ómari, Ívari og svo Evu Lind, Selmu og Ólöfu, í einhverri limmósíu að drekka kampavín og horfa á sjónvarp! sem sagt... þetta var Mafían og ég eitthvað greip blaðið af einhverjum saklausum skelfdum krakka og sýndi gaurnum sem ég var með... og sýndi honum um ritstjórnina fremst í blaðinu... þegar hann var búinn að skoða þetta allt þá spurði hann "Á ég þá að fara kalla þig Bóbó???" og það sló mig... mér er búið að takast að halda Bóbó nafninu utan vinnunnar í heilt ár... og núna tókst það ekki lengur... núna verður þetta eins og í Bónusvideo þegar var hringt og "Bóbó... ert þú að vinna á morgun?" eða maður skoðaði vinnuskýrslurnar og þar var "Ívar og Bóbó, ívar og Bóbó, Bóbó og kalli" hehe... djöfullinn... æ... maður sleppur ekki endalaust greinilega...

Leyndarmálið mitt mikla sem ég reyndi svo mikið að fela... komið á yfirborðið...

sofaBjörgvin Freyr

það er það sem mig langar að gera... sofa... en ég er eitthvað andvaka langt fram eftir öllu... síðustu milljón nætur... skil ekki... skiptir samt ekki máli því ég er bara á kvöldvöktum yfirleitt...

það er bara svo ekkert að gerast í hausnum mínum... bara tómt... það er svo tómt að það bergmálar hehe

æææ já já... hmmm...

...

...

...

jæja... samt tókst að skrifa eitthvað svo Vilborg hafi eitthvað að lesa í skólanum á morgun

JEY Vilborg á AfmæliBjörgvin Freyr

Frábært! þetta afmælisblogg er tileinkað afmælisbarni dagsins Vilborgu! en hún á einmitt líka alveg... tvo þriðju hluta allra kommenta á þessari síðu!

Við skulum fara yfir sögu Vilborgar:

Vilborg fæddist á sjúkrahúsinu á Selfossi þann 24 Janúar 1985 klukkann... ööö... veit ekki... nei annars... við skulum ekki fara yfir Sögu Vilborgar... við skulum frekar bara... tala um veðrið... hehehe.. Vilborg einmitt spáir mikið í veðrið hehehe... nei já... einkahúmor... alla vega... þá... er hægt að skrifa heila bók um Vilborgu jafnvel þótt að maður væri nýbúinn að kynnast henni þá gæti maður skrifað trílogíu um Vilborgu eftir svona... ja... þrjá tíma kannski... ef þetta er eins langt og Lord of the rings... aaa bull... ööö...Já nóg um afmælisbarnið eina sem þið þurfið að vita er að það er virkilega sorglegt að ekki allir í heiminum hafi einhvern eins og Vilborgu í símaskránni því þá liði öllum vel... og þá væru engin stríð... hmmm bíddu við... ég get nú lagað það! ég er einmitt með símann hjá Vilborgu ég gef hann bara upp hérna og þá er ég að gera heiminn að betri stað... Síminn er 561-6464... er það ekki? nei þetta er vinalínan... jæja... nærsti bær við... Vilborg vill hvort er eð ekkert hafa símann sinn hérna

NÓG um hana...

ég er að komast að því að það er til sjúkraflutningamannaskóli! mig langar í það... en mig langar líka að fara út... og ég get ekki hætt við það núna því ég er eiginlega búinn að virkilega ÁKVEÐA það að fara út... sjúkraflutningaskólinn er bara planið að gera þegar ég kem heim aftur... maður þarf altaf að eiga plan...

En hey... ég var að ná í fimmta þátt af 24... og... ég má ekki láta hann bíða of lengi án þess að horfa á hann... það er bara bjánalegt...

stærsta hræðslan mín!Björgvin Freyr

þið skrifið stundum svo vitlaust krakkar... ég er alveg ekkert mikið skárri ég ruglast oft á því hvort það er eitt eða tvö M í Fimmtudagur og ég get ekki sett snakk í fleirtölu... En... það er nú stundum bara ótrúlegt... það er til dæmis venjulegt" í" í "líst þér ekki vel á" og það eru í rauninni bara tvö P í pipar... hmmm ég komst líka að því að það er K í kvetja... en ekki H...

En stóra spurninginn er hvort Paprika er ávöxtur eða grænmeti??? Ég man það ekki ég man bara að ég var ósammála Óla á Hrauni og mig minnir að hann hafi sagt að paprika væri ávöxtur... því mér finnst paprika alveg í anda grænmetis... er annars ekki eitt K á Paprika???

Og þeir sem hafa reynt að hlusta á mig í gegnum tíðina mega vita að ég hef fengið refsingu við skipulagsleysisóreiðunni minni... því Ómar lét mig fá teiknimyndasögur sem mig langar voða mikið að lesa... en þetta eru í rauninni kannski svona 15-20 sögur... sem gerast á sama tíma og til að rugla ekki tímalínunni þarf maður að lesa flestar sögurnar á sama tíma... og það er sko... ekki lítið furðulegt... í rauninni bara ekki hægt...

Halli hringdi í mig áðan og í sameiningu komum við auga á kannski bara mína stærstu hræðslu til þessa... ég virðist vera alveg... langt frá því til í að þjóna til borðs... samt er ég alveg á báðum áttum... hef í rauninni ekki neitt betra að gera... en samt... neibbs... kannski ef ég fengi að vera í smóking og allir tæku þetta álíka alvarlega og ég þá væri það alveg til... en samt... NEI

ég hefði kannski átt að hafa þetta þrjár mismunandi bloggfærslur svo þetta entist lengur í Vilborguna sem les þetta... æææ of seint að breyta núna...

skoðaBjörgvin Freyr

FYRSTI gaurinn er búinn að skoða íbúðina! það er stórglæsilegt! hann er sko að leigja hérna í götunni minni og langar það ekki lengur og vill eiga sína eigin íbúð... og þá helst í hverfinu... Svo íbúðin mín uppfyllir þau skilyrði ásamt einhverjum 10 öðrum... en... hann vantar mörg herbergi... hann þarf 4 herbergja íbúð og það eru bara fjórar aðrar svoleiðis í götunni minni og af þeim er mín ódýrust!!! hnjahnja! þetta leggst bara mjög vel í mig allt saman... núna er bara að vona að hann eigi alveg fyrir þessari... hmmm ég veit að hann var að vinna til hálf sex í dag og hann var frekar snyrtilegur þegar hann kom beint úr vinnunni þannig að... ég hugsa að hann sé í einhverju skrifstofustarfi... og þau eru einmitt fínt borgað... svo fyrst hann hefur verið aðleigja hingað til og er að ákveða núna að kaupa sér þá hlýtur hann að hafa lagt smá fyrir... hann er varla að ákveða þetta bara upp úr þurru...

Ég held að íbúðinn mín fari að hverfa af markaðnum...

og svo kom Ómar til að fóðra mig með pitsu og það Hróa Hött pítsa sem var bara næstum jafngóð og pitsan sem Vilborg gerði þegar hún vann þar... Vilborg hefur þú ekkert hugsað þér að fara aftur að vinna í Hróa??? Það voru svo góðar pitsur altaf... :)

HorbjóðurBjörgvin Freyr

úff... sko af því að ég er svo fallegur inn í mér þá langaði einn læknir að setja mig í magaspeglun, sem ég gerði því það hljómar alveg soldið gaman... EN NEI!!! magaspeglun er sko EKKI gaman... ég auðvitað byrjaði á að leggjast á svona spítalarúm og þá byrjuðu hjúkkurnar alveg "þetta er ekkert mál" geðveikt hughreystandi og minns auðvitað geðveikt harður bara "já já... ég borða magaspegla í morgunmat" held þau hafi öll séð í gegnum mig... Svo e-h buðu þau mér upp á hressandi deyfingu sem læknirinn sagði mér að myndi smakkast svipað og skemmdur banani... og þá kom hjúkkan alveg "ég myndi segja... skemmt bananalíkjör" alla vega... þau hefðu getað sagt mér að þetta myndi bragðast eins og sítrónusafi blandað í frostlög, ekkert hefði undirbúið mig fyrir þetta bragð... og önnur hjúkkan fór að hafa áhyggjur og var alveg " þú svo dullegur svooo stór strákur!!!" og ég reyndi að halda kúlinu og var alveg "pfrt hughk prrr... já... ég spotta bananabragðið... hgfr" svo dofnaði ég allur og læknirinn byrjaði að troða vélindað mitt fullt af slöngu og fyrst á meðan þá var þessi ótrúlega elskulega hjúkka eitthvað að klappa mér á kollinn eins og hvolp eða e-h og var alveg " þú ert alveg obbosslega dullegur" og ég var augljóslega ekki að takast að halda kúlinu mínu, svo ég eiginlega sofnaði... þetta tekur 10 mínútur og ég man bara eftir að ég fann snúruna vera snúast í maganum mínum og svo bara lokaði ég augunum og andaði djúpt... Meðan hjúkkan var eitthvað að íhuga að ættleiða mig held ég... þá bara steinsofnaði ég... og e-h vaknaði geðveikt óþægilega þegar læknirinn var að toga slönguna úr kokinu mínu... og ég bara e-h missti mig í vibbanum... svo var þetta bara búið og læknirinn alveg "já... þú stóðst þig mjööög vel! en... ég hins vegar sá engar bólgur og allt virðist vera í lagi með magan í þér" hann tók samt einhver sýni og e-h... EN VÁ!!! þetta var eitthvað það vibbalegasta sem ég hef lent í... fyndin hjúkka samt...

Björgvin Freyr

Ég á nýja tölvu! og ég kann ekkert á hana... Ullandi ég bað Oddrúnu um að klippa mig og sem sagt sótti hana þegar ég var búinn að kaupa mér tölvuna, svo hún var inn í þessu frá upphafi, síðan sýndi hún mér eitthvað fullt sem er hægt að gera með Bluetooth og þráðlausa netkortinu mínu... sem mér hefði aldrei tekist án hennar hehe... Svo bara klippt hún mig í tætlur og ég er voða sáttur, fólkið í vinnunni var líka alveg voða sátt með þetta... EN svo um nóttinna þá vorum við 3 á næturvakt og þetta var steiktasta næturvakt sem ég hef tekið þátt í... það var stelpa þarna sem heitir Heiðdís og hún fékk gígantískan svefngalsa sem gerði það að verkum að hún hló að bröndurunum mín um og ef það er eitthvað sem fólk bara á ekki að gera þá er það að hlæja að bullinu mínu því þá hætti ég bara ekki... svo við vorum alveg í ruglinu... alveg... bullið sem kom út úr okkur það bara náði ekki nokkurri átt... og svo grey Valdi sem var þarna líka... hann ætlaði alveg ekki að lifa nóttina af á tímabili... hehehe... svo horfðum við á 24 því ég tók nýju fínu tölvuna mína með Saklaus núna get ég örugglega ekki án hennar verið framar... Alla vega... blablablabla

SagaBjörgvin Freyr

Bíllinn minn er alveg einstakur... Hann er sko engann veginn hugsaður fyrir svona veður og hann er alveg einstaklega skemmtilegur þegar er svona laus snjór á götunum... Alla vega þá vorum við Einar að erindast um allan bæ um daginn og í rauninni ekki að gera neitt. fórum í mat til Þórirs en hann var í bleiku götunni í smiðjuhverfinu... næst þegar þið keyrið þar um takið eftir því að ALLAR göturnar eru merktar með lit og stórum stöfum Græn gata, Blá gata, Grá gata... nema Bleika gatan... hún er aðeins merkt með lit... Okkur fannst þetta mjög athyglisvert þegar við keyrðum þar framhjá í 200 skipti... Hehe... en allt reddaðist svo ákváðum við að heimsækja Halla og Jakob í Biblíuskólann þeirra, og ég var sem sagt sem oftar að segja Einari hvað bíllinn minn lætur vel af stjórn þegar bíllinn minn einmitt lét AF stjórn og ákvað að hin akreininn væri miklu skemmtilegri... sem sagt móti umferð akreinin kannski langaði hann bara að kynnast þessum BMW sem var einmitt að reyna nota hina akreinina... En alla vega þá gerðist þetta allt í slow motion sem betur fer því þá hefur maður alveg tækifæri til að stoppa sig aðeins af... þannig að við komumst hjá því að rekast á hinn gaurinn... Síðan fórum við sem sagt að hitta Jakob og Halla og ég var einmitt með biblíuna hans Jakobs aftur í... alveg þangað til ég leit aftur í... þá fattaði ég að hún var ennþá heima... svo við brunuðum til baka og komumst loksins til Halla og Jakobs... þar fengum við okkur kaffi og bulluðum...

Þá fyrst var sko farið að hrynja úr himnunum og ég sá varla neitt... en við fórum samt í MAX rétt hjá hafnarfirði og stoppuðum smá þar og drifum okkur svo í burtu... En þar sem skyggnið var alveg verra en smarties með sinnepi þá ákvað ég að fylgja bara þessum hjólförum sem voru beint fyrir framan mig... eins og Indíjánarnir úr Lukku láka þá elti ég slóðina og sá fyrr en varði að hún lá beint ofan í einhvern skurð eða gryfju... Svo ég var ekki sáttur og fór að bremsa... En þar sem þetta var ekki veðrið til að ætlast til að geta bremsað þá hugðist franski, blái bíllinn minn bara ekkert ætla að stoppa svo stoppaði hann alveg á endanum á malbikinu... og rann svo aðeins fram af... eins og í teiknimyndunum hann alveg... æææ þið vitið... en já... sem sagt bíllinn stoppaði bara þar og vildi ekki fara aftur upp á malbikið... OG við nenntum svo sannarlega ekki að vera fastir svo ég fór bara að torfærast á jeppanum mínum og alveg... James Bondaðist upp á alvöru veginn aftur, verð samt að viðurkenna að ég átti aldrei von á að hann gæti þetta... Og Einar og Jakob pottþétt ekki heldur... En það tókst og við heimsóttum Ara og Söru næst...þau einmitt gerðu þau risa mistök að hleypa Einari inn á heimilið sitt, því hann fór að ryfja upp viðkvæmu fortíðina þeirra og tókst kannski að gera þetta vandræðalegustu tvo tíma ævi þeirra... mér fannst það samt alveg nokkuð fyndið... En já... held að þetta sé samt ekkert fyndið að lesa...

þetta var léleg saga... Best að skrifa eitthvað annað

neibbs nenni ekki... það er hvort eð er enginn skóli fyrr en á mánudaginn hjá eina lesandanum mínum ;)

veit ekki hvað ég ætla skrifa hérnaBjörgvin Freyr

nýjasti Muse diskurinn er eiginlega bara fínn, voða sniðugur... ég skilaði Justin Timberlake diskinum sem ég gaf Árna í jólagjöf og hef ekki ennþá látið Árna greyið fá Muse diskinn sinn... MWAHAHA

Ég á ferðum mínum um jörðina... í framtíðinni þá ætla ég að skrifa skáldsögu og hún á að vera um ofur súper hetju... ekki ólíka Jack Bauer og James Bond... hmmm hann þyrfti þá að heita enhverju J,B nafni eins og Jónatan Brjánn eða eitthvað... hmmm... alla vega þá á þessi ofursvala persóna að vera alveg bara... venjulegur gaur sem kjánalega flóknir hlutir gerast í kringum... svo í rauninni ætla ég ekkert að skrifa um þessa persónu... frekar svona... skrifa um alla í kringum hann og láta þá altaf segja hvað þeim finnst... ekki það sem hann er sjálfur að hugsa... svo kannski seinna leyfa fólki að komast að því hvað hann er að pæla... mig vantar eiginlega fyrirmynd...

En hmmm... Vilborg vill fá sögustund en ég hef bara engar sögur á takteinunum svo hún er óheppin... geta ekki lesið sér sögur á blogginu mínu... jæja... hún verður bara senda mér SMS í staðinn hehehe

2007Björgvin Freyr

HAHA það kom svo bara ekkert framhald...

Jamms... alla vega... ÞAÐ er komið heilt nýtt ár! það er 2007 og altaf í byrjun hvers árs fæ ég altaf svona... "ég get gert hvað sem er" dellur... og ákveð endalaust margt sem frestat svo bara fram á þar næsta ár... og verður svo ekkert úr í rauninni... svo... ég eiginlega þori því ekki þetta árið líka... því þá verður aldrei af því... En já skiptir ekki það miklu máli...

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...