en æðisleg hugmyndBjörgvin Freyr

Ég er nú meiri hetjan.

eða eitthvað... hvað ætlaði ég aftur að skrifa? man það einhver?

En strákarnir eru komnir að ná í mig svo ég er farinn

mí spasBjörgvin Freyr

Aron er með myndir af splunkunýja snúllanum á mæspeisinu sínu... EN ég er ekkert með neitt sem kallast my space svo ég get ekki séð þær... það angrar mig óhemju... Svo núna er ég alvarlega að hugsa um að stofna mitt pláss á Mí spes...

En ég kann ekki og/eða nenni ekki að gera það svo ég ætla fá Ómarínus til að vera mín hægri hönd í því verðuga verkefni

Annars er ekkert af mér að segja annað en að ég er að vinna á Klepp og ég er að hugsa um að kalla mig ekki lengur Stuðningsfulltrúa heldur Field Agent því ég er altaf e-h að fara af deildinni

Annað var það ekki að þessu sinni... Hefði eignilega geta sent þetta í tölvupósti til Sigrúnar og Vilborgar og bara losað mig við þessa ovsomm síðu samt... Eða... hmmm ég held ég sé að fá hugmynd...

JÁ!!!

ég fékk hugmynd...

Kominn í hringBjörgvin Freyr

hvað er...

Og hvernig?

Nei ég veit það ekki heldur... En það sem ég veit er að ef maður hættir í vinnunni sinni og fer til útlanda kaupi hús, vinnur annarstaðar í eitt sumar og byrjar svo aftur í vinnunni sinni þá er alveg eins og maður hafi aldrei hætt... Nema að allt er orðið pínu öðruvísi en samt alveg eins...

Ég held bara að ég hafi gleymt að þrífa bílinn minn í dag... ég hef 45 mínútur til þess áður en ég fer í vinnunna og ég held að það bara nægi engan veginn... því þetta er svakalega sóðalegur bíll og ég þarf virkilega að þrífa hann að innann og ryksuga og læti sko...

En núna er ég kominn alveg þangað sem ég var... nema að núna eru tveir uppáhaldsvinir mínir ekki með neina kærustu... og nenna miklu frekar koma út að leika :)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...