BíltúrBjörgvin Freyr
Vitiði hvað maður á að gera? Fara í bíltúr... Það er lausnin á öllu.Sigrún kom með þessa uppástungu um daginn og við Ómar og Sigrún fórum í bíltúr... eins og maður gerði í gamla daga, Svo fórum við Vilborg í bíltúr líka í dag alveg eins og maður gerði í gamla daga... svo áðan duttum við Ómar í að fara í stuttan bíltúr líka áðan svo... Og þetta er betra en kaffihús... maður gerir það sama... Spjalla... en maður þarf ekki að eyða pening í kaffi eða kakó... það er ekki fólk að tala um eiturlyf á næsta borði... en maður þarf samt að hafa áhyggjur af umferðinni... hmmm ég veit ekki... það eru kostir og gallar
Ég er spenntur...
ég ætti að fara sofa ég er að vinna klukkan átta á morgun...
mysingurBjörgvin Freyr
MySiNgur = manneskja sem eyðir mestum sínum tíma á MSNÉg er fullur af fróðleik! spurjið bara og þið munið svo sannarlega sjá eftir því... af því að eins og snjall maður sagði eitt sinn "Sannleikann??? ÞÚ Höndlar ekki sannleikan"
En úr bullinu og yfir í...
nei höldum okkur í bullinu... Það hressi og kætir...
á ég kannski að segja ykkur sögu? ég gæti það alveg ég hef alveg eina langa og sannarlega langdregna sögu að segja ykkur... en ég held að ég skrifi hana ekki hér því að sögupersónurnar gætu lesið hana fyrir mistök og sótt um nálgunarbann á mig því að... ja...
Ég held samt að það sé óhætt að segja ykkur að Ómar og ég vorum að vinna um helgina kvöldvakt sem sagt búnir klukkan 23:15 eða eitthvað og svo morgunvaktina þar á eftir klukkan 8:00 og þar á milli sváfum við hvorugur... okkur fannst greinilega betri hugmynd að skella okkur niðrí bæ og gera allt annað en að sofa... við lifðum samt alveg af alla nóttina og þarna kom líklega einn þáttur í sögutímum barnanna minna í framtíðinni sem munu hafa nafnið "How I met your mother" nema það sé eitthvað sem heiti það nú þegar... hmmm ekkert sem ég man eftir nema... já... nema bestu þættir í heimi að vísu... en enginn virðist horfa á þá... þeir eru bara leynilegi fjársjóðurinn okkar strákanna... hehe
Svo mikið veit ég... eða... Ég veit svo mikið...
Endilega kommentið... ég kem ekki með nýja færslu fyrr en það eru komin fimm komment hérna
Skelfileg stađreyndBjörgvin Freyr
Mér leiðist... ég held að ég bara viti ekkert hvað ég á af mér að gera þegar ég er ekki í vinnunni... Jú þá yfirleitt myndi maður hringja í einhvern af mínum traustu og æðislegu vinum en það er nú bara staðreynd að Vilborg er altaf að læra, Ómar er þunnur, Ægir er á Stykkishólmi... Og restin er mjög virkt í sínum samböndum þannig að ég er bara... hmmm... Skiptir ekki... ég fer bara eitthvað út...Blogg tileinkađ SigrúnuBjörgvin Freyr
Sko einu sinni fyrir langa langa löngu fórum við Ægir í bíó og með okkur í þessa bíóferð fyrir langa, langa löngu kom Ívar... Ívar hins vegar kom með leynigest sem var alls ekkert leynigestur heldur bara bráðhugguleg ung kona sem heitir Sigrún... Ég man það eins og það hefði gerst í gær... Ægir bjó í Flétturimanum, Ívar keyrði um á Coltinum og við Vilborg vorum að vinna í Osta og smjörsölunni... Ég man líka að við fórum á Pirates of the caribean... fyrstu myndina... Ég var geggjað spenntur og gott ef... mig minnir að ég hafði séð hana áður...Jæja alla vega Ægir vildi alls ekki fara á hana því honum fannst sjóræningjar sökka... Ég hins vegar var alveg fullkomlega ó móti því og Elskaði sjóræningja... enda hafði ég spilað Monkey Island leikina þegar ég var lítill... og... HVER elskar ekki sjóræningja eftir það? En alla vega... Þegar ég hitti Sigrúnu fyrst var ég virkilega pirraður því að Ægir hafði farið í mínar fínustu... Þetta var sem sagt á einhverjum tímapunkti sem ég varð pirraður þegar hlutirnir voru ekki alveg eins og ég vildi hafa þá... En svo kom Sigrún... Og mig minnir að hún hafi verið í leðurjakka og með gleraugu og allt öðru vísi en ég hafði ýmindað mér... Samt... kom manni skemmtilega á óvart... Hins vegar þá var ég ennþá pirraður því Ægir var ó móti sjóræningjum... og það gæti vel verið heimskulegasta ástæða til að vera pirraður en einhvern veginn þá grunar mig að ég eigi miklu verri ástæður... einu sinni meira segja talaði ég ekki við Vilborgu í þrjá daga af því að hún neitaði að hætta tala dönsku... En það er nú önnur saga... Þið vitið hvernig maður verður ennþá pirraðri þegar fólk er ánægt þegar maður er pirraður... já... ég sem sagt verð líka pirraðri þegar fólk er gott við mig þegar ég er pirraður... fólk ætti helst bara að flýja vettvanginn þegar ég er pirraður... En Sigrún greyið vissi það ekki og hún gerði þau mistök að halda opinni hurðinni fyrir mig... og ég veit ekkert af vherju en mig minnir að ég hafi snappað eitthvað á hana og sagt eitthvað...
Alla vega... við fórum í bíó... myndin var komin í lítinn sal og eins og svo oft áður þá lögðum við af stað fimm sekúntur í átta... Þannig að við fengum Ekki sæti nálagt hvert öðru og Ægir var orðinn svo pirraður af því að ég elskaði sjóræningja þannig að hann nennti ekki einu sinni að finna sér sæti heldur settist í tröppurnar... ég man að ég fann sæti og var hamingjusamur en seinni hluta myndarinnar fann Ægir líka sæti...
En svo bara endaði allt vel og í lok kvöldsins hafði ég kynnst Sigrúnu... Jæja... eftir þetta samt var hún alveg uppáhalds manneskjunum mínum og einvhern tíman miklu seinna þá var ég svo niðursokkinn í eitthvað spjall við hana að ég bara eitthvað... keyrði á 50 á miklubrautinni... man það af því að Ómar var að keyra á undan mér á 80 og hann hringdi...
En já... svo mörgum árum eftir að við fórum í bíó á pirates of the caribean, mörgum árum eftir að ég keyrði á 50 á miklu brautinni og meira segja mörgum árum eftir að Sigrún byrjaði með Steina þá fór ég að heimsækja hana til San Sebastian á spáni... og það var bara geggjað, fórum að ég held bara út um allt og borðuðum líka allt... og fólk spurði okkur hvað eftir annað hvort við værum kærustupar... Meira segja ein blind gömul kona spurði hvort Sigrún væri ólétt... Það var eitthvað spes... sú kona var klárlega geðveik því hún var að bíða eftir stelpu í hjólastól á þriðju hæð... við sáum lyftuna og það var Engin séns að nokkur stelpa í hjólastól hefði komist þar fyrir... Alla vega svo daginn eftir þá einmitt gargaði konan eitthvað á mig og ég skyldi ekki orð... en hún alla vega var klárlega snargeðveikt gamalt kvendi
En já... Hvað skyldi maður segja ykkur meira um Sigrúnuna okkar... Kannski ættuði bara að komast að því sjálf því að allir ættu virkilega að hafa eina svona í lífinu sínu... það eiginlega bara reddar deginum...
hmmm... Já þetta verður bara að ver fínt í bili...