Meira seinnaBjörgvin Freyr

Ég var bara að læra í gær... og svo aftur núna... ég er nefnilega svoooo duglegur...

En hamingjan ræður ríkjum í Björgvinsheimi, kannski af því að ég er gjörsamlega raunveruleikafyrtur... ég var veikur í viku um daginn... og ég átti bara von á að skólinn myndi ekki hreyfa sig neitt því ég hef aldrei orðið neitt var við það að hann geri neitt þegar ég er ekki í honum... en svo bara... hélt hann áfram án mín og ég skulda skilaverkefni hægri, vinstri allt í einu eru einhver próf sem ég vissi ekkert um og ég er gjörsamlega í ruglinu... bæði það og ég er mest líklega að fara úr náttúrufræði og yfir í Sálfræði sem er ÓGEÐSLEGA töff... og þið vitið ekki af hverju

En það kom einhver Byltingarmaður hingað um daginn með hvísl svo ég bara varð að skrifa... Þið sáuð hann kannski...

Alla vega... Aron er með tölvuna mína og ég er ekkert duglegur á tölvunni hans Einars...

athyglisvert?Björgvin Freyr

Ég bæði elska og hata bílinn minn... ég var að keyra í dag og fannst það eiginlega bara ágætt að það var ekki mikið kaldara eða blautara úti af því að rúðan í bílnum mínum er föst niðri... síðan brummaði ég eitthvað um allt sem væri ekki frásögu færandi nema af því að EF ég mæti einhverjum stórum bíl, þá skvettir hann altaf vatni INNUM rúðuna mína... og í nær öllum tilfellum yfir mig þar sem ég er yfirleitt inn í bílnum mínum. Maður getur nú orðið soldið pirraður... en samt ekki því þetta er ógeðslega fyndið vandamál að hafa... sem sagt að þegar maður sér stóran bíl fara að mæta sér að þá fer maður altaf alveg út í kannt og leitar að plastinu sem er oftast í glugganum... eða maður bara veit hvað er að fara gerast og bara sættir sig við að maður er að fara fá skvettu yfir sig...

En... Í fréttum er annars það helst að ég fer uppí skóla á morgun að sækja stundartöfluna mína... hún er að öllum líkindum alveg tóm því enginn þarna uppí Borgó veit neitt hvað ég ætla fara í... og enginn var við í dag til að ég gæti sagt það við...

OG annað!

Við erum að fara taka til... ég er eitthvað að reyna það sjálfur og Einar kemur eftir kannski klukkutíma og svo hringdi ég í backup sem er Sigrún þannig að...

þannig að ég ætti kannski að fara laga aðeins til áður en þau koma svo þau haldi ekki að ég sé ekkert að gera hérna...

2007Björgvin Freyr

ÉG var að skoða gamlar bloggfærslur frá öllu 2007, sem var einmitt að klárast núna bara... í gær... eða fyrradag... En...

Annáll!!!

Janúar
Þá bjó ég aaaaaleinn í Flétturimanum svo ég bloggaði voða mikið um EKKERT, var ennþá að vinna á kleppi og var altaf á næturvöktum, síðan á daginn þá var ég að sýna fólki íbúðina því hún var á sölu. Svo bara einn daginn þá hringdi Hjölli sem ég tók næturvaktir á móti og hann sagðist ætla hætta í næturvaktabransanum... og ég vildi ekki fara í 100% næturvinnu svo ég hætti því líka.

Febrúar
Ég bloggaði líka mikið þá, það var mánuðurinn sem Gummi stal penna af sætri afgreiðslustelpu á Hróa Hetti og við létum hann fara aftur inn og skila honum, óborganlegt... Ég og Lilja úr vinnunni bökuðum bleikar vöfflur og eitthvað... Við Ómar vorum að lyfta í Orkuverinu, ég man samt ekki eftir að hafa mætt þar oft... En alla vega... íbúðin var ennþá á sölu og ég var ennþá e-h á einstaka næturvöktum og altaf á kleppi

Mars
Meira af því sama, bíða eftir að íbúðin seldist, þarna samt var ég byrjaður að plana útlandaferðina mína en hélt samt altaf að Gulla kæmi með mér. Þar til allt í einu eitthvað voða skondið. Bíllinn minn var Hálfviti og sprengdi dekkin sín hægri vinstri. Svo var grímuballið hjá klepp þarna einhverstaðar. svo hætti ég í lok Mars.

Apríl
Flutti úr Flétturimanum og bjó hjá mömmu og pabba í þrjá daga, Oddrúnu fannst ég láta mömmu stjórna mér of mikið og sagði
" Farðu og findu sjálfan þig,
Segðu mömmu þinni upp
og ENDURHEIMTU karlmennskuna......"
þá fór ég til útlanda, kynntist Amy í Englandi, hitti Sigrúnu í San Sebastian, einhvern Belga á leiðinni til Granada, skoðaði Ítalíu alveg í smáatriðum... Fór út um allt þar.

Maí
Skoðaði Frakkland og Þýskaland, týndist í Frakklandi og þurfti að beita öllum mínum krúttsvip, hugrekki og yfirnáttúrulegu kröftum til að finna leigubíl hvað eftir annað... París er klikkuð sittý. Þýskar tölvur eru með takka sem heitir "EYÐA-ÖLLU-TAKKINN" og hann kemur sér aldrei vel. Svo hitti ég Vilborgu í Danmörku og tvo dani sem eru bestir í heimi... þeir voru blekaðir en samt mest bestir. Svo kom ég til Íslands, bjó hjá mömmu í viku og keypti mér svo nýtt hús og flutti þar inn strax. það var ekkert parket á húsinu og fólk tók sannarlega eftir því. Svo byrjaði ég að vinna hjá Magga og hann hafði lítið sem ekkert að gera fyrir mig nema skutlast út um allt land að ná í timbur... Síðan hættu Ómar og Oddrún saman í Maí.

Júní
þá vann ég í Borgarfirði við að smíða sumarbústaði með fimm litháum. Ekki margt um það að segja annað en að ég daðlaði tvo putta á hendinni minni.

Júlí
Þá var ég að gera nákvæmlega það sama og í Júní. Um helgar kom Ómar í heimsókn eða maður gerði eitthvað kjánalegt.

Ágúst
Byrjaði aftur á Klepp og á fyrstu dögunum var ég sendur í special operation til Egilstaða, ákvað að hætta vera stuðningsfulltrúi og kalla mig Field agent í staðinn. Var frekar sáttur við að allir uppáhaldsvinir mínir væru piparsveinar. og svo hápunktur ársins... fék mér MYSPACE síðu... sem ég er alveg hættur að pæla í núna. minir að ég hafi farið að lyfta í world class í þessum mánuði...

September
Datt í það! til að fá strákana til að koma með mér á tískusýningu þar sem stelpan var sem ég ákvað að verða ástfanginn af... Svo varð ég ekkert ástfanginn af henni. Fór á wulfgang tónleika og fannst þeir geggjaðir, ákvað einmitt að fara oftar á underground tónleika en svo bara... varð ekkert úr því. Annars altaf á kleppi nema þegar ég var að lyfta með Ómari og Ægir

Oktober
Kleppur, lyfta og svo horfa á How I met your mother allar nætur, var greinilega ekki mjög duglegur að blogga þennan mánuð...

Nóvember
ég bloggaði tvisvar í Nóvember og það var einmitt mánuðurinn sem ég fékk mér parket. einmitt líka mánuðurinn sem ég fór í annað special assignment til Hornarfjarðar á vegum vinnunnar, annars var örugglega afmælið hennar mömmu þarna níunda þegar við gáfum henni gítar... ooooog ekkert meira af viti...

Desember
Einar flutti inn. Bíllinn minn varð þrooooooskaheftur... líklega afbrýðsamur útí Einar, hélt litlu jólinn... vann um Jólinn, og íbúðinn varð að Hiroshima minnismerki. En já... það er svo stutt síðan að ég þarf ekki einu sinni að segja frá því hérna... HEY!!! Halli gifti sig í þessum mánuð... Steggjuninn var Bíiiiiiiiiiip!!! og við Biiiiiiiiip!!! og meira segja Biiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiipp!!! En þið vitið nú allt um það...

Gamlárskvöld

Þið vitið hvernig kenningin mín er... að gamlárskvöld sé bara lítil útgáfa af árinu sem kemur í framhaldinu... síðasta gamlárskvöld var ég voða mikið einn... og var veikur ef ég les þessa bloggfærslu rétt... og árið... einn í útlöndum, einn mest allt sumarið og bjó einn altaf nema í desember... EN þetta gamlárskvöld... samkvæmt kenningunni minni sem ég sá í OC (ehemm) þá á ég eftir að gera mörg góðverk, ferðast... jafnvel alla leið til Hafnarfjarðar... og svoooo geri líklega EKKERT af því sem ég hafði planað ég ætlaði til Ægirs og Palla en endaði svo bara á því að fara til Gumma og Odds Péturs... og Hafnarfjarðar... svo var ég eitthvað að eltast við eitthvað kvenndýr sem var ekkert þar sem það átti að vera svo... sjitt... vonandi verður ekki annað svoleiðis ár... hehehe

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...